Gisting og morgunverður ásamt tveimur drykkjum á Hótel Laxá í Mývatnssveit
Nánari Lýsing
Einstök upplifun á Hótel Laxá. Komdu í smá dekur og upplifðu allt það sem Mývatn hefur uppá að bjóða.
Gisting fyrir tvo með morgunverði ásamt tveimur drykkjum.
Ath. að tilboðið gildir frá 1. október.
Hótel Laxá
Hótel Laxá í Mývatnssveit er glæsilegt hótel í suðurhluta Mývatnssveitar sem opnað var sumarið 2014. Hótelið stendur í fallegum ás í suðurhluta sveitarinnar og er útsýni til allra átta frá hótelinu, hvort sem um er að ræða Laxá í Mývatnssveit sem hótelið er nefnt eftir, Mývatn eða hinn stórkostlega fjallahring sveitarinnar. Við hönnun hótelsins hafa ýmis sérkenni Mývatnssvæðisins verið höfð til hliðsjónar og þau dregin fram með ýmsum hætti. Hótelið er tilvalinn staður fyrir einstaklinga, pör/hjón eða hópa til að gera sér glaðan dag í fallegri sveit. Á hótelinu eru 80 herbergi með baði, veitingasalur sem tekur 100 manns, bar með óviðjafnanlegu útsýni yfir sveitina og fundarsalur.
Á Hótel Laxá er veitt öll alhliða gisti- og veitingaþjónusta sem finna má á þriggja stjörnu hóteli. Á glæsilegum veitingastað hótelsins er í boði sérréttaseðils þar sem lögð er áhersla á sérstöðu svæðisins í matargerð og notkun hráefnis úr nágrenninu. Við hönnun veitingastaðarins voru litir hverasvæðisins lagðir til grundvallar, þessi sérstaka litasamsetning sem einkennir háhitasvæði sveitarinnar.
Falleg og notaleg setustofa og bar er á Hótel Laxá en þar er lögð áhersla á að draga fram sérkenni vatnaskúfsins eða kúluskítsins fræga sem er eitt af einkennum Mývatnssveitar. Þar er gott að koma saman og njóta góðra veitinga með frábæru útsýni yfir Mývatn og sveitina. Öll herbergi eru fallega innréttuð og útbúin þeim þægindum sem einkenna gæðahótel. Þau eru með fallegu viðargólfi og baðherbergin með sturtu. Hver álma hefurvsitt nafn og er það nafn sótt í náttúru Mývatnssveitar. Þráðlaust net er á hótelinu og er það án endurgjalds fyrir hótelgesti.
Smáa Letrið
Gildistími: 01.10.2024 - 30.04.2025
Notist hjá
Vinsælt í dag