Flúðafjör í Hvítá
Nánari Lýsing
Arctic Rafting býður upp á flúðasiglingar og ævintýri í Hvítá á Suðurlandi örstutt frá Gullfossi og Geysi. Frábært fjör fyrir einstaklinga og hópa. innifalið í ferðinni er aðgangur að sturtum, heitum pottum og saunu eftir siglinguna.
Ferðin hefst frá Drumboddsstöðum, þar sem allir þátttakendur fá búnað sem gerir þeim kleift að takast á við ána. Þaðan keyrum við stutta vegalengd alveg að árbakka Hvítár þar sem fjörið hefst. Fyrsta flúðin er rétt handan við hornið og í kjölfarið koma flúðirnar í bunu. Ferðin spannar sjö kílómetra í gegnum skemmtilegar öldur sem leiða okkur niður falleg gljúfur. Við fyllumst undrunar er við fljótum í gegnum hina margrómuðu og fallegu Brúarhlöð. Á þeim stað, ef aðstæður leyfa, höfum við boðið þeim sem vilja að stökkva fram af klettinum í ískalda jökulsána.
Heitir pottar, sauna og veitingar
Drumboddsstaðir bjóða ekki einungis upp á flúðasiglingar. Á staðnum er að finna heita potta, sauna-klefa, veitingastað og bar. Við erum nýbúin að endurnýja búningsklefa og bæta við heilli viðbyggingu.
Eftir hasarinn er tilvalið að ylja sér í saununni og heitu pottunum og jafnvel njóta í leiðinni veiganna sem í boði eru á veitingastaðnum okkar og bar.
Smáa Letrið
Hvað er innifalið?
- Flúðasigling niður Hvítá með sérþjálfuðum leiðsögumanni.
- Allur mikilvægur búnaður; blautgalli, björgunarvesti, neofren skór, hjálmur og ár.
- Fljótandi heimsókn í gegnum Brúarhlöður
- Sána og sturta til að hlýja sér eftir ferðina
- Upplifun í litlum hópi! Einungis 8-10 farþegar í hverjum flúðabát
- Þú þarft að kunna að synda
- Í Flúðafjör er 11 ára aldurstakmark.
- Í Fjölskylduflúðafjör er 8 ára aldurstakmark. Sú ferð er sérstaklega útfærð með börn frá 8 ára aldri í huga.
- Það er hinsvegar ekki aldursþak, bara að vera heilbrigð/ur og að treysta sér til þess að fara í kalda jökulsá.
- Ef þú getur ekki verið án gleraugna þá mælum við með að koma eða kaupa Chums af okkur á Drumbó.
- Þú getur komið með myndavélina þína, en ef hún er ekki vatnsheld þá mun hún eyðileggjast.
Því hefur þú þrjá möguleika: Þú átt vatnsheldna myndavél og tekur hana með þér.
Þú leigir GoPro frá okkur á Drumbó
Þú kaupir einnota vatnshelda myndavél frá okkur á Drumbó
Gildistími: 21.07.2024 - 21.12.2024
Notist hjá
Vinsælt í dag