Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Magnea J. Matthíasdóttir

Hægara pælt en kýlt gerist annars vegar í heimi ævintýranna, hins vegar í heimi eiturlyfjanna. Í ævintýraheiminum er háð barátta upp á líf og dauða, í heimi eiturlyfjanna virðist ríkja ró sálarlífsins, en varla nema á yfirborðinu – því að óttinn er einnig áhrifamikill þar. Þessir tveir heimar snertast alla söguna í gegn, renna jafnvel að einhverju leyti saman. Hvar fáum við – venjulegir lesendur – fest hendur? Alls staðar, því að við komumst að því að hér er engu öðru lýst en veruleikanum sjálfum.

Sagan, sem óhætt er að kalla eina af athyglisverðustu bókum síns áratugar, hlaut mikið lof þegar hún kom út í október 1978 fyrir efnistök, persónulýsingar og meðferð málsins.

Dagný Kristjánsdóttir ritar eftirmála.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun