Höfundur: Sölvi Björn Sigurðsson
Að veiða er að segja sögur. Um leið og lína lendir á vatnsfleti hefst sagan og engin leið er að spá fyrir um sögulok.
Í Undir sumarhimni – sögur af veiðiskap eru sögur fjölmargra veiðimanna, sögur af þeim stóru sem sluppu, sögur af fiskum á óvæntum stöðum, sögur af því þegar allt gengur upp og því þegar ekkert gengur upp, sögur af frábærum félagsskap og ævintýralegu umhverfi.
Undir sumarhimni – sögur af veiðiskap gerir biðina eftir næstu veiðiferð þolanlegri. Að vera veiðimaður er endalaus tilhlökkun.