Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Annað hefti Tímarits Máls og menningar er komið út og er að þessu sinni óvenju ríkt að skáldskap; sögum og ljóðum eftir íslenska og erlenda höfunda sem fara með lesendur á ólíklegustu staði: í taugatrekkjandi fasteignaskoðun, inn á blúsbar í Bangkok, upp í rúm með afmælisbarni og um San Francisco-borg þvera og endilanga í leit að jólatrjám, svo fátt eitt sé nefnt. Greinahöfundar líta líka til ýmissa átta; Kristján Hrafn Guðmundsson rýnir í Tímann og vatnið eftir Stein Steinarr og veltir fyrir sér kyni ástarviðfangs ljóðsins, Snædís Björnsdóttir gefur innlit í það sem efst er á baugi í dönsku bókmenntalífi um þessar mundir og Jón Erlendsson hugleiðir heimsbókmenntir, vegagerð og varnargarða í þakkarávarpi sem hann hélt þegar honum voru veitt Íslensku þýðingarverðlaunin á dögunum. Þá eru barnabækur til umfjöllunar, og meira að segja barnabækur í barnabókum.