Höfundur Jenny Colgan
Polly Waterford býr í vita í smábænum Mount Polbearne á Suðvestur-Englandi ásamt unnusta sínum, myndarlega hunangsbóndanum Huckle, og lundanum Neil. Hún gæti ekki verið hamingjusamari: ástfangin upp fyrir haus og í draumastarfinu í Litla bakaríinu við sjávarsíðuna þar sem hún nýtur þess að baka dýrindis brauð og kökur ofan í heimafólk og ferðamenn.
En þegar eigendur bakarísins heimta meiri hagnað á kostnað gæða og Huckle ílendist í verkefni vestanhafs, þarf Polly að taka til sinna ráða og hugsa líf sitt upp á nýtt. Jafnframt eru hættur hafsins aldrei fjarri í þessu litla fiskimannaþorpi, eins og Polly fær að reyna á eigin skinni með eftirminnilegum hætti.
Sjálfstætt framhald Litla bakarísins við Strandgötu sem sat á metsölulistum á Íslandi mánuðum saman.
Hugguleg, hugljúf og heillandi saga eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan sem heillað hefur lesendur um allan heim með notalegum, fyndnum og lystaukandi bókum sínum. Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu er þriðja bók Jennyar Colgan á íslensku en bækur hennar eru gefnar út í 15 löndum.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun