Vertu alveg snúrulaus...
Engin snúra að flækjast fyrir þér sem getur átt það til að festast hingað og þangað í garðinum. Þannig ertu fullkomlega frjáls til að hreyfa þig ákveðið og örugglega um garðinn. Allt að 30 mínútna rafhlöðuending ** Á einni hleðslu nærðu að slá allt að 150 m² – en það er rúmlega hálfur tennisvöllur. Samhæfða 18V lithium rafhlaðan er með 4 LED ljósi sem lætur vita nákvæmlega hversu mikil hleðsla er eftir meðan á slætti stendur
Einnar-handar verk.
Prófaðu nýja leið í garðslætti...
SLM50 vegur aðeins 3,5 kg full samsett*, Vélin er nett og létt og því er auðvelt að ýta henni á undan sér um garðinn með annarri hendi. Loksins er komin græja fyrir þá sem eru með litlar gras flatir sem þó þarf að snyrta og slá. Fullkomin lausn til að eiga við þröng svæði þar sem hefðbundnar sláttuvélar henta ekki.
Hönnuð með þig í huga.
"Sláttuvélar taka venjulega mikið pláss í geymsluni og geta verið erfiðar í notkun þegar þú ert að slá lítinn grasflöt. Hnífurinn í vélinni nær nánast í alla enda og gerir það að verkum mun auðveldara er að slá gras með fram veggjum og á stöðum sem annars er erfitt að komast að."
Lágfætt...
Við höfum haldið hæð litlu rafmagns sláttuvélarinnar í lágmarki svo þú getur rennt henni undir trampólín, borð, stóla og annað sem oft þvælist fyrir þegar verið er að slá. Þú þarft ekki að færa til hluti í garðinum, sparar tíma og fyrirhöfn og þú færð meiri tíma til að njóta útiverunnar og garðsins.
Öryggið í fyrirrúmi...
Öryggi þitt er í fyrirrúmi.
Aðalrofinn sem er virkjaður með lykli verður að vera í „on“ stöðu og ýta þarf á öryggisrofann til að sláttuvélin fari í gang.
Auk þess virkjast „auto-off“ öryggislæsingin þegar handfanginu er lyft í há horn (yfir 66 °).
Omni-blade sláttutækni
Beitt og endingargott blað SLM50 er úr kolefnisstáli sem snýst hratt á stöðugum hraða 5200 snúningar á mínútu (hámark). Skurðbreidd blaðsins er 25 cm.
Fyrirferðarlíti í geymslu
Það er undir þér komið hvernig þú geymir SLM50 sláttuvélina. Þú getur auðveldlega tekið hana í sundur í nokkrum einföldum skrefum og geymt íhlutina sérstaklega.
Tvær hæðarstillingar
Hægt er að stilla sláttuhæð SLM50 sem að hjálpar þér að halda flötinni snyrtilegari en áður.. Skiptu einfaldlega á milli 40 mm og 50 mm hæðar með því að stilla fram- og afturhjólin. g heilbrigðu. ± Bara kostir!
Enginn safnkassi
Þegar að grasið er slegið oftar og snöggt þá brotnar slegna grasið niður á náttúrulegan hátt, frjóvgar þannig jarðveginn og heldur grasinu þannig heilbrigðu. Bara kostir!
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
Ábyrgðir | 2 ár til einstaklinga |
Þráðlaust | Já |
Garðverkfæri | Sláttuvél |
Hentugt | Fyrir Flatir |
Gerð | SLM50 |
Rafhlöðu volt | 18 V |
Gerð rafhlöðu | Endurhlaðanleg Lithium-ion |
Rafhlöðu gerð | 30 mínútur |
Hleðslu tími | 4 klukkustundir |
Rúmmál safntanks | Enginn safntankur |
Sláttu breidd | 25 cm |
Sláttuhæð | a) 40 mm b) 50 mm |
Þyngd | 2.5 kg (SLM50 + GT50 handfang & rafhlaða = 3.5 kg. SLM50 + HT50 handfang + rafhlaða = 3.4 kg) |
Stærð vöru | (Hæð) 137 cm x (Breidd)51cm x (Dýpt)31cm |
Vöruleiðbeiningar
Small Lawnmower SLM50 Manual
Sendingar og skil
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun