Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Tove Jansson

Litlu álfarnir og flóðið mikla – Halastjarnan – Pípuhattur galdrakarlsins

Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimyndasögum, bíómyndum og ekki síst bókum.

Hér birtast tvær af sögunum ástsælu, Halastjarnan og Pípuhattur galdrakarlsins, en jafnframt allra fyrsta sagan af múmínálfunum, Litlu álfarnir og flóðið mikla, sem aldrei fyrr hefur komið út á íslensku. Þar segir frá leit múmínsnáðans og mömmu hans að múmínpabba eftir að allt fer á flot. Þau eignast nýja vini og lenda í ótrúlegum ævintýrum sem halda svo áfram í hinum sögunum: Halastjarna stefnir á Múmíndal, múmínsnáðinn og félagar fara í leiðangur upp í Einmanafjöll og eignast fleiri vini – og pípuhattur galdrakarlsins finnst og stefnir öllu í voða.

Tove Jansson skrifaði sögurnar um múmínálfana og teiknaði myndirnar. Fyrsta sagan kom út 1945 en Múmíndalurinn varð fullmótað sögusvið í Halastjörnunni. Bækurnar hafa notið gífurlegra vinsælda og verið þýddar á yfir 40 tungumál.

Steinunn Briem þýddi Halastjörnuna og Pípuhatt galdrakarlsins. Þórdís Gísladóttir þýddi Litlu álfana og flóðið mikla.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun