Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Bókin Lifandi saga er eftir Jörn Rüsen, þekktan þýskan sagnfræðing sem hefur skrifað mikið um sögustefnu, aðferðir og heimspekigrundvöll sagnfræði. Bókin fjallar um eðli sagnaritunar og hvernig afrakstur sagnfræðilegra rannsókna getur öðlast líf og gegnt stóru hlutverki í samfélaginu.

Bókin skiptist í tvo meginhluta. Sá fyrri er um framsetningu sögu. Síðari hlutinn fjallar um hlutverk sögunnar í skólum og annars staðar í samfélaginu. Skoðun höfundar er að söguleg menntun auki mátt menningar til að verða skynsamleg og að sagan orki frelsandi á huga fólks.

Bókin er þýdd af Gunnari Karlssyni sagnfræðingi og er gefin út í ritröðinni Ritsafn Sagnfræðistofnunar.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun