Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Else Karin Bjerva, Reidun Haugen, Sigrid Stordal

Heilbrigði, lífsvenjur og umhverfi, samspil þessara þátta og áhrif þeirra á heilsuna eru meginviðfangsefni þessarar bókar.

Í fyrri hluta bókarinnar er fjallað um hugtökin heilsa og sjúkdómur og lögð áhersla á hvernig hægt er að varðveita og efla eigin heilsu. Kynntir eru alengir sjúkdómar, áhættuþættir og forvarnir á vegum ýmissa aðila. Sérstaklega er fjallað um forvarnir sem lúta að umhverfinu, slysavarnir og vinnuvernd, forvarnarstarf í þágu barna og baráttu gegn þeirri heilsuvá sem stafar af reykingum og vímuefnanotkun. Í síðari hlutanum er litið á heilbrigði í sögulegu og menningarlegu samhengi. Hugað er að þeim sjúkdómum og meinum sem að okkur steðja og gerð grein fyrir helstu flokkum örvera, smitleiðum sýkla og vörnum gegn sýkingum. Lögð er áhersla á eigin ábyrgð, sem og áhrif ytra og innra umhverfis.

Bókin er þýdd úr norsku, en mikið aukin íslensku efni og löguð að íslenskum aðstæðum. Töflur og teikningar eru til skýringar og skemmtunar.

Elísabet Gunnarsdóttir þýddi.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun