C22 öryggismyndavél
360° öryggismyndavél með Wi-Fi 6 stuðningi fyrir heimili, skrifstofur og bústaði
3K upplausn | 5MP | 360° hreyfigeta | Infrarauð nætursjón | Eltir hreyfingu | Gervigreind skynjar manneskjur | Tvíhliða samtöl
Há upplausn sýnir meiri og skarpari smáatriði
Imilab C22 öryggismyndavélin er með 5MP linsu sem skilar upplausn 2880x1620 eða 3K. Það tryggir að fleiri smáatriði sjáist og allt verður þeim mun skarpara. Linsan minnkar einnig truflun frá ljósi og upptakan verður þar af leiðandi líflíkari. Í gegnum Xiaomi Home appið er hægt að snúa myndavélinn 360° til hliðanna og einnig upp og niður svo hægt er að vakta allt rýmið.
Sofðu rótt með öryggið á oddinum
C22 er með 850nm infrarauðri nætursjón. Vélin sér einstaklega vel í lágum birtuskilyrðum og gefur ekki frá sér ljós sem gæti truflað værann svefn.
Wi-Fi 6 stuðningur
C22 er með þeim fyrstu innimyndavélum sem hafa stuðning við Wi-Fi 6 staðalinn. Wi-Fi 6 skilar allt að 30% meiri hraða miðað við Wi-Fi 5 og því er vélin sneggri að hlaða upp rauntímaupptöku og með minni truflunum.
Öflug gervigreind
C22 er með uppfærðu gervigreindar reikniriti. Gervigreindin er betur í stakk búin að greina hreyfingar og mannaferðir og senda tilkynningar í síma. Gervigreindin sér einnig til þess að sía út óþarfa tilkynningar. Hægt er að stilla myndavélina þannig að hún elti hreyfingar. C22 getur einnig sent tilkynningar þegar óeðlilegt hljóð greinist eða þegar einhver fer inná fyrirfram greint hættusvæði, t.d barn að fara nálægt eldavél.
Tvíhliða samtöl í rauntíma
Með Xiaomi Home appinu er hægt að hefja tvíhliða samtal í rauntíma þökk sé innbyggðum míkrófón og hátalara í myndavélinni. Myndavélin síar út óþarfa læti og betrumbætir raddir fyrir skýrari samtöl.
Staðbundin geymsla + skýjageymsla = meira öryggi
Hægt er að setja SD kort í myndavélina sem vistar upptökur þegar hreyfing er skynjuð eða látið hana taka upp á ákveðnum tímum, Myndavélin tekur allt að 64GB SD kort. Í gegnum Xiaomi Home appið er hægt að fá áskrift að skýjaþjónustu sem geymir upptökur.
Skýjageymsla
Geymir upptökur á skýinu í gegnum áskrift
SD kort
Staðbundið SD kort geymir allt að 5 daga af upptöku áður en hún yfirskrifar elstu upptökurnar
Upp eða niður, þitt er valið!
Styður hefðbundna og öfuga festingu. Myndavélina er hægt að hengja í loft eða einfaldlega leyfa henni að sitja á borði.
Myndavélinni fylgir festing sem er auðvelt að skrúfa í loft. Til að snúa myndinni við þarf bara að snúa skjánum í stillingum myndavélarinnar.
Einföld uppsetning í þremur skrefum
Náðu í Xiaomi Home appið og stofnaðu aðgang/skráðu þig inn
Tengdu myndavélina í rafmagn og bíddu eftir að það komi appelsínugult ljós hjá linsunni
Ýttu á plúsinn (+) í efra hægra horninu og leitaðu að Imilab C22, fylgdu leiðbeiningum í appinu og vélin verður tilbúin til notkunar
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun