Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Garðar Gíslason

Félagsfræði 1 – einstaklingur og samfélag er kennslubók ætluð fyrir áfangann FÉL 103. Í bókinni er fjallað um það efni sem er tilgreint í námsskrá menntamálaráðuneytisins fyrir þennan áfanga. Bókin kom fyrst út árið 1997 og er þetta þriðja útgáfa hennar. Hún hefur nú verið rækilega endurskoðuð, ýmsu nýju efni bætt við og eldra efni fellt burt. Sérstök áhersla var lögð á að uppfæra tölfræðilegar upplýsingar.

Bókin skiptist í 17 kafla sem hver um sig fjallar um afmarkað svið félagsfræðinnar, s.s. menningu og trú, samfélagið, fjölskylduna, stjórnmál o.fl., og aftast í hverjum kafla er listi með mikilvægum orðum, hugtökum og spurningum upp úr efni hans.

Höfundur bókarinnar er Garðar Gíslason, kennari við Menntaskólann í Kópavogi.

Ítarlegt vefefni fylgir bókinni og má nálgast á nemenda- og kennarasvæði Forlagsins.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun