Höfundur: Vésteinn Lúðvíksson
Vésteinn Lúðvíksson olli vissum vatnaskilum í íslenskum bókmenntum með skáldsögu sinni Gunnar og Kjartan og Átta raddir úr pípulögn um 1970. Raunsæisleg verk hans vöktu mikla athygli en síðan gerði hann hlé á ritstörfum. Hann sneri aftur með ljóðabókinni Úr hljóðveri hugans árið 2003.