Höfundur Andri Snær Magnason
„Þið skáldin eruð ekki í neinum tengslum við raunveruleikann,“ segir leigubílstjóri við Andra Snæ Magnason í upphafi þessarar frumlegu og makalausu bókar. Skáldið svarar kallinu og fer með lesandann í óvenjulegt ferðalag um íslenskan samtíma. Með því að skoða hlutina frá frumlegu og skáldlegu sjónarhorni lýkur Andri Snær upp algerlega nýrri sýn á kunnuglega hluti.
Í Draumalandinu víkur Andri Snær af braut fantasíu, bónusljóða og blárra hnatta og ræðst að kjarna stærstu mála samtímans. Allt myndar þetta hraða og spennandi bók sem hrærir upp í heimsmyndinni.
Draumalandið er áhrifamikil bók um brýnustu málefni okkar tíma, skrifuð af þekkingu og fágætri ástríðu sem hreyfir við hverjum lesanda. Varla hefur nokkur íslensk bók vakið viðlíka athygli og umræðu við útkomu en Draumalandið gerði þegar það kom út snemma árs 2006. Fyrir hana fékk Andri Snær Íslensku bókmenntaverðlaunin 2006. Þá hlaut bókin „Verðlaun verðlaunanna“ árið 2009 í tilefni af 20 ára afmæli Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun