Flokkar:
Höfundur: Elísabet Valtýsdóttir
Dansk der du’r er grunnefni til dönskukennslu í framhaldsskóla. Lögð er áhersla á að kynna nemendum danska tungu, menningu, siði og venjur. Efnið er þríþætt:
- Lesbók með mjög fjölbreyttum textum úr ýmsum áttum. Hér eru ljóð, smásögur, viðtöl, blaðagreinar, textar sem eru sérstaklega samdir fyrir Dansk der du’r og margt fleira.
- Vinnubók geymir margvíslegar æfingar og verkefni við kaflana í lesbók og sjálfstæð verkefni. Bent er á ýmsar vefslóðir sem eru forvitnilegar fyrir nemendur. Einnig eru hér æfingar við hlustunarverkefni.
- Geisladiskar með þrjátíu og einni hlustunaræfingu fylgja efninu og er þá að finna innan í vinnubók.
Höfundarnir, Auður Hauksdóttir og Elísabet Valtýsdóttir, eru margreyndar við gerð kennsluefnis í dönsku.
Kennsluleiðbeiningar eru sendar út í tölvupósti, vinsamlegst sendið beiðni um þær á [email protected] eða [email protected].
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun