Árbók FÍ 2016 fjallar um Skagafjörð austan Héraðsvatna, frá Hjaltadal í suðri að Úlfsdölum í norðri.
Höfundur bókarinnar er Páll Sigurðsson, rithöfundur og fyrrverandi lagaprófessor sem sjálfur er frá Sauðárkróki. Árni Hjartarson, jarðfræðingur fjallar í sérstökum kafla um skagfirska jarðfræði og landslag.
Bókin er prýdd fjölda ljósmynda frá mörgum höfundum. Gísli Már Gíslason annaðist umbrot bókarinnar og kortin eru teiknuð af Guðmundi Ó Ingvarssyni. Ritstjóri bókarinnar er Gísli Már Gíslason.
Skagafjörður austan Vatna II er þriðja af þremur árbókum FÍ sem fjalla um Skagafjörð í heild sinni. Hinar eru árbækurnar 2012 sem fjallar um Skagafjörð vestan Vatna, frá Skagatá að Jökli og árbókin 2014 sem er fjallar um Skagafjörð austan Vatna, um svæðið frá Jökli að Furðuströndum.
Í bókunum þremur sem saman telja yfir 700 blaðsíður er að finna heildstæða land- og landslagslýsingu um Skagafjörð, sögur af mannlífi, margs konar kveðskap, jarðfræðiyfirlit, byggðasögu héraðsins og margt fleira.
Kaflar í bókinni
- Haldið úr hlaði
- Dyr inn í fjallaheim Tröllaskaga
- Hjaltadalur
- Kolbeinsdalur
- Út að austan
- Höfðaströnd
- Sléttuhlíð og Hrolleifsdalur
- Álfahöfði og Eyjar
- Fljót
- Skagfirsk jarðfræði og landslag
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun