Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Jónína Leósdóttir

Á gamlársdag er Eddu boðið í brúðkaup á Þingvöllum hjá fólki sem hún þekkir varla haus eða sporð á. Hún býður Finni nágranna sínum með sér og barnabarnið, Dagný Edda, myndar athöfnina ásamt vinkonu sinni. Þar með flækjast þau öll inn í rannsókn skelfilegs glæps sem framinn er fyrir utan litlu kirkjuna. Rannsóknin varpar óvænt kastljósi á veislu sem forsætisráðherra undirbýr í gamla Þingvallabænum og setur líka leyndardómsfull áramótaplön ungu stúlknanna í uppnám.

Andlitslausa konan er fimmta bók Jónínu um Eddu á Birkimelnum, glímu hennar við flókin sakamál og samskiptin við fjölskylduna sem stundum eru síst einfaldari.

Jónína Leósdóttir hefur getið sér gott orð fyrir bókaflokkinn um Eddu, hörkuspennandi sögur sem ríghalda frá upphafi til enda.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 9 klukkustundir og 14 mínútur að lengd. Elín Gunnarsdóttir les.

Hér má hlusta á fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun