Flokkar:
Size / Stærð: 750 ml
Château Potensac er talið eitt fremsta vínhús Médoc-svæðisins utan hinna opinberu 1855-flokkunar. Það er í eigu Delon-fjölskyldunnar, sem einnig á og rekur hið goðsagnakennda Château Léoville Las Cases í Saint-Julien. Potensac er þekkt fyrir klassísk og langlíf vín með dýpt og glæsileika. Dæmigert vín fyrir þetta svæði. Í nefi sólber, bláber, pennastokkur (graphite), cedrusviður og kryddjurtatónar. Í munni er vínið þétt, vel uppbyggt með glæsilegri tanínbyggingu og steinefnaríku eftirbragði.Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun

