Á miðjum aldri eiga sér stað miklar breytingar í lífi okkar. Þá er mikilvægt að staldra við, taka leikhlé og íhuga stöðu okkar svo við getum mætt sterkari til leiks í seinni hálfleik. Takist okkur vel upp eru spennandi tímar framundan. Og framtíðin sem bíður þeirra sem eru miðaldra í dag er gjörólíkt þeirri sem blasti við fyrri kynslóðum.
Í aðgengilegum og einlægum texta fjallar Árelía Eydís Guðmundsdóttir um þessi mikilvægu ár, en hún hefur sökkt sér niður í rannsóknir á þessu skeiði í lífi fólks. Árelía horfir einnig til framtíðar á vinnumarkaði þar sem nýr og framandi veruleiki blasir við fólki á miðjum aldri með spennandi möguleikum – ef við spilum rétt úr okkar spilum.
Ómissandi bók fyrir alla þá sem vilja eiga möguleika á að njóta lífsins til fulls í seinni hálfleik ævinnar og taka þátt í atvinnulífi og samfélagi framtíðarinnar af fullum krafti.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun