Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Sigurbjörg Þrastardóttir

Alexandra Flask íhugar að stökkva fram af svölum litlu íbúðarinnar sem hún leigir í Barselónu. Þrátt fyrir hitabylgju í borginni er þrálátt kul í hjartanu – harmi blandin sektarkennd – og ekki bætir úr skák að hömlulaust ástarlíf annarra gegnsýrir hversdaginn.

Er besta svarið við eftirsjá að skaða líkamann fyrir lífstíð? Hvers vegna hafna sumir holdlegum fýsnum? Er hægt að taka líf sitt einungis til hálfs? Maður spyr sig – á meðan maður vonar hálfpartinn að stelpugarmurinn stökkvi.

Sigurbjörg Þrastardóttir er í röð kunnustu ljóðskálda sinnar kynslóðar og hefur einnig skrifað fyrir leikhús. Ljóðabók hennar Blysfarir var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2009.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafraHér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 9 klukkustundir og 15 mínútur að lengd. María Nelson les.

1.140 kr.
Afhending