Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Höfundur Kim Thúy

[removed]

Á frönsku þýðir orðið ru lítill lækur, eða í óeiginlegri merkingu eitthvað sem rennur á borð við
tár eða blóð. Á víetnömsku þýðir orðið vögguvísa eða sú sem svæfir og huggar.

Árið er 1968 og stríð geisar í Víetnam. Fjöldi fólks freistar þess að flýja land í von um betra líf.
Þar á meðal er ellefu ára stúlka sem flýr yfirstéttarlíf í Saigon, með viðkomu í malasískum flóttamannabúðum, alla leið til Kanada. Þar verður hún bátaflóttamaður í smábæ og þarf að laga sig að nýjum lifnaðarháttum og nýju tungumáli.

Inn í söguna fléttast örlög fleiri Víetnama, í Saigon og í Kanada, bæði á stríðs- og friðartímum.

Höfundurinn, Kim Thúy, var líkt og sögupersóna verksins ein af „bátafólkinu“ svonefnda og er meðal frægustu höfunda Kanada í dag. Ru hefur verið þýdd á fjölda tungumála og unnið til margra verðlauna.

Arndís Lóa Magnúsdóttir þýddi.
1.499 kr.
Afhending

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun