Flokkar:
Höfundur: Hjörtur Marteinsson
Land til að sauma rósir í er ort í orðastað manns sem snýr aftur á heimaslóðirnar í leit að fortíð í landi þar sem áttirnar renna hver inn í aðra og Guð færir útgerðarmanninum aflann. Upp hefst ferðalag í tíma og rúmi um eyjuna sem gleypir í sig sumarbirtuna.
Hér dregur verðlaunaskáldið Hjörtur Marteinsson upp mynd af Íslandi fortíðar og nútíðar og staðleysunum þar á milli. Þótt tónninn sé ljóðrænn og dulúðugur má einnig lesa í bókina hárfína ádeilu á þjóðfélag sem er týnt sjálfu sér. En fyrst og fremst magnar skáldið hér upp andrúmsloft sem auðvelt er að týnast í.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun