Höfundur Matilda Voss Gustavsson
Í miðri metoo-byltingunni 2017 birtist forsíðufrétt í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter þar sem átján konur báru áhrifamann í sænsku menningarlífi þungum sökum. Þær sögðu sögur af áreitni, hótunum og nauðgunum. Maðurinn starfrækti virtan menningar- og listaklúbb í Stokkhólmi og var í nánum tengslum við meðlimi Sænsku akademíunnar.
ÍKlúbbinumgaumgæfir blaðakonan Matilda Gustavsson valdaöflin í sænsku menningarlífi og hversu langt sumir leyfa sér að ganga í nafni listarinnar. Hún fjallar um þær afleiðingar sem fréttaflutningurinn hafði og lýsir þeim hörðu átökum sem urðu innan Sænsku akademíunnar, einnar elstu og virtustu menningarstofnunar veraldar.
Sænskir gagnrýndendur kepptust við að lofaKlúbbinnþegar bókin kom út þar í landi og hlaut hún meðal annars menningarverðlaun sænska dagblaðsins Expressen.