Amanda Sundin hverfur sporlaust einn júlídag og nákvæmlega ári síðar finnst Johan eiginmaður hennar alvarlega sár á heimili sínu. Maia Bohm er nýráðin til lögreglunnar í Motala og þetta eru fyrstu málin sem hún fær til rannsóknar. Ásamt nýjum starfsfélaga, Greg Wallin, hefur hún leit að sökudólgnum.
Á sama tíma liggur Tim, sonur Maiu, hjartveikur á spítala og bíður eftir líffæragjöf. Á meðan júlídagarnir líða glímir Maia við að leysa ráðgátuna um Sundin-hjónin. Með hverjum deginum eykst líka hættan á að Tim lifi ekki af. Kapphlaup upp á líf og dauða hefst þegar ljóst verður að örlög sonar hennar ráðast af því hvort lögreglumálið leysist.
Maia lætur engan og ekkert standa í vegi fyrir sér – ekki einu sinni sannleikann.Amanda Sundin hverfur sporlaust einn júlídag og nákvæmlega ári síðar finnst Johan eiginmaður hennar alvarlega sár á heimili sínu. Maia Bohm er nýráðin til lögreglunnar í Motala og þetta eru fyrstu málin sem hún fær til rannsóknar. Ásamt nýjum starfsfélaga, Greg Wallin, hefur hún leit að sökudólgnum.
Á sama tíma liggur Tim, sonur Maiu, hjartveikur á spítala og bíður eftir líffæragjöf. Á meðan júlídagarnir líða glímir Maia við að leysa ráðgátuna um Sundin-hjónin.
Með hverjum deginum eykst líka hættan á að Tim lifi ekki af. Kapphlaup upp á líf og dauða hefst þegar ljóst verður að örlög sonar hennar ráðast af því hvort lögreglumálið leysist.
Maia lætur engan og ekkert standa í vegi fyrir sér – ekki einu sinni sannleikann.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun