Endurfundir er safn sextán nýrra smásagna þar sem Einar fer á kostum og bregður upp svipmyndum af ýmiss konar fólki eins og honum einum er lagið; þar á meðal eru heimsfrægir menn, einstæðingar, vandræðagemsar, skáld og krimmar. Þetta eru sögur úr samtíðinni; sumar fjalla um sannsögulega atburði og kunnum persónum og goðsögnum bregður fyrir, þó að samhengi og sjónarhorn kunni að koma á óvart
Einar Kárason er frábær sagnamaður með næmt auga fyrir sérkennum fólks og samskiptum: Maður hittir mann og úr verður saga. Glaðbeittur og tilgerðarlaus stíll Einars ásamt innsæi hans og húmor hafa aflað honum vinsælda heima og erlendis og hér sýnir hann enn hve öflug tök hann hefur á þeirri flóknu list að segja góða sögu.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 48 mínútur að lengd. Höfundur les.