Ný Stellu-bók eftir Gunnar Helgason! Gunnar er einn ástsælasti höfundur landsins og fáar barnabækur hafa notið viðlíka vinsælda og bókaflokkurinn um Stellu. Allar bækurnar hafa hlotið Bókaverðlaun barnanna og sú fyrsta, Mamma klikk, hreppti auk þess Íslensku bókmenntaverðlaunin. Eftir henni var gerð vinsæl leiksýning hjá Gaflaraleikhúsinu og leikhúsgestir – eins og aðdáendur Stellu um allt land – kröfðust þess að heyra meira um hana. Hér kemur saga fyrir þá!
Kæri lesandi,
Eftir allt sem gekk á í Mömmu klikk, Pabba prófessor, Ömmu best og Sigga sítrónu heldur þú kannski að allt sé orðið rólegt. En óóóónei! Litlu tvíburakrúttin hafa alveg snúið lífi mínu á hvolf. Og það sem verra er: Palli bróðir er gjörsamlega að klúðra lífi sínu!!! Og auðvitað verð ég að bjarga honum! (Eins gott að Þór er ekki með neitt vesen).
En ómægod, hvar væri þessi klikkaða fjölskylda án mína?
Kær kveðja,
Stella (bjarvættur og meistara kærasta… já og meistaraþjófur!)
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 45 mínútur að lengd. Höfundur les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun