Höfundur: Eva Eriksson
Nú er komið að síðasta skóladegi Dinnu í fyrsta bekk. Skólaslitin eru framundan og allir keppast við að skreyta skólastofuna. Allt í einu er bankað á dyrnar og Dinna er beðin að koma fram
á gang. Það hefur orðið slys …
Ég var svo hamingjusöm… er þriðja bókin um Dinnu. Hún er sjálfstætt framhald af bókunum Hamingjustundir Dinnu og Hjartað mitt skoppar og skellihlær.
Bækur Rose Lagercrantz um Dinnu með myndum Evu Eriksson hafa verið þýddar á fjölda tungumála og þær hafa unnið til margvíslegra verðlauna. Myndir og texti lýsa gleði og sorgum Dinnu á hrífandi og auðskilinn hátt. Bækurnar efla skilning ungra lesenda á mikilvægi þrautseigju og sannrar vináttu.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun