Buggy & Borgari fyrir tvo
Nánari Lýsing
Buggy og Borgari
Ferðin hefst við Skíðaskálann í Hveradölum. Eftir stutta yfirferð á öryggismálum er farið í hlífðarfatnað og öryggisbúnaður settur upp. Því næst er farið í Buggy bílana og lagt af stað.
Í þessari tveggja tíma ferð er einstakt tækifæri til að upplifa náttúru Íslands. Farin er skemmtileg leið þar sem við sjáum stórkostlegt landslag.
Við stoppum við í Gróðurhúsinu í Hveragerði og fáum okkur ljúffengan hamborgara og meðlæti.
Stórkostlegt landslag, þar sem við förum yfir ár og upp á útsýnisstaði með tilkomumiklu útsýni í allar áttir.
Buggy bílarnir eru 4ja sæta, 4x4 og sjálfskiptir. Allir bílarnir uppfylla ítrustu öryggiskröfur eins og bílbelti og veltigrind.
Innifalið:
- 2ja tíma Buggy ferð.
- Máltíð í Gróðurhúsinu.
- Einangraður galli.
- Hjálmur og buff.
Vinsamlegast klæðist hlýjum innanundirfötum og góðum skóm.
Smáa Letrið
- Við pöntun þarf að gefa upp nafn tengiliðs, netfang, símanúmer, gjafabréfsnúmer,
- Afbókanir þurfa að vera 24 klst fyrir brottför.
- Ath - Gjafabréfið gildir fyrir tvo í 2 klst.
Gildistími: 17.07.2024 - 17.12.2024
Notist hjá
Vinsælt í dag