Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Höfundur Franz Kafka

[removed]

Karl Rossmann er unglingspiltur sem kemur yfir hafið frá Evrópu til New York, staðráðinn í að standa sig vel í nýja heiminum en lendir í lygilegum ævintýrum og slagtogi við óráðvanda menn. Sjálfsbjargarviðleitni Karls leiðir hann stöðugt á óvæntar brautir og saga hans er bæði framandleg og fyndin.

Þegar Franz Kafka lést skildi hann eftir sig þrjár ófullgerðar skáldsögur sem komu fyrst út eftir hans dag:Réttarhöldin,Höllinaog þessa sögu sem var án titils en hlaut nafniðAmeríkaþegar hún birtist fyrst árið 1927. Í seinni tíð hefur hún einnig komið út undir heitinuDer Verschollene(Horfinn).

Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson þýddu söguna og rituðu fróðlegan eftirmála í fyrstu útgáfu hennar á íslensku árið 1998. Nú hefur Ástráður endurskoðað þýðinguna og ritað nýjan eftirmála sem hér birtist auk hins eldri.

Franz Kafka (1883–1924) fæddist í Prag og lifði mikla umbrotatíma. Hann var lögfræðingur að mennt og starfaði lengst af hjá tryggingafyrirtæki. En ritsmíðar voru honum ástríða og lífsnauðsyn og í þeim kannaði hann ótryggar slóðir sem sett hafa mark sitt á heimsmynd nútímans.

[removed][removed]Ástráður Eysteinsson þýddi, Eysteinn Þorvaldsson þýddi.

3.990 kr.
Afhending

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun