Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Nathanael West

Í þessari mögnuðu skáldsögu segir frá blaðamanni sem hefur það verk með höndum að svara lesendabréfum frá ástlausu og ráðþrota fólki í dálkinum „Ungfrú Einmana? sem birtist daglega í blaði hans. Blaðamaðurinn sogast með harmrænum hætti inn í örvæntingarfullt líf lesenda sinna ? í sama mund og hann sjálfur missir tök á eigin lífi. Hann leitar árangurslaust að tilgangi lífsins og með hverjum degi á hann erfiðara með að bregðast við raunum lesenda sinna. Svört kómedía sem gerist í New York á bannárunum í upphafi kreppunnar miklu. Nathanael West var einn hæfileikaríkasti og frumlegasti rithöfundur sinnar kynslóðar í Bandaríkjunum. Hann lést aðeins 37 ára í bílslysi 1940.