Skáldsagan Kvikasilfur er sjálfstætt framhald af skáldsögunni Heimskra mann ráð. Persónur úr þeirri sögu halda í Kvikasilfri áfram að lifa lífinu og í bakgrunni er íslensk saga síðustu áratuga.
Í kynningu segir meðal annars: „Bankastjórinn lendir í steininum, – agalegt skúffelsi í fjölskyldunni, en athafnaskáldið Bárður stofnar landsfrægt flugfélag, Salómon vaknaður af Kleppi, Gúndi bróðir í sérkennilegum viðskiptum frá hótelherbergi sínu í Amsterdam, frú Lára komin í prófkjörið og skyndilega hverfur Sigfús yngri Killian voveiflega úr bílaportinu …“
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 23 mínútur að lengd. Höfundur les.