Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Svarta Kisa er í vondu skapi. . . mjög vondu skapi, og Hvutti gerir bara illt verra.

Móri frændi, sem ávallt er bóngóður á raunastund, kemur til hjálpar og tekur að sér að passa Hvutta eitt eftirmiðdegi. Vandræðin byrja um leið og þeir stíga út úr húsinu. Móri lendir næstum í grjótinu en Hvutti lendir svo sannarlega í grjótinu … eða réttara sagt hundaskýlinu. Þar kynnist Hvutti mjög svo sérstökum voffanáungum. Bráðfyndin og hrífandi saga í senn. Hundadagur er fyrsta bókin í ritröðinni um Svörtu Kisu þar sem athyglin beinist að hinum óviðjafnanlega og krúttlega Hvutta!

Svartur húmor eftir Nick Bruel í þýðingu Sigurgeirs Orra Sigurgeirssonar.