„Líttu til stjarnanna og lærðu af þeim.“
Albert Einstein
Alheimurinn er ný bók í vinsælli ritröð sem margir kannast við. Bækur þessar eru í senn fróðlegar, aðgengilegar og afskaplega eigulegar og því mikill fengur að þeim fyrir þekkingarþyrsta lesendur á öllum aldri.
Bókinni er skipt í þrjá meginhluta. Í inngangi er að finna yfirlit fyrir grundvallarhugtök stjörnufræðinnar. Í kaflanum Vegvísir um alheiminn er síðan fjallað um sólkerfið, Vetrarbrautina okkar og þá hluta himingeimsins sem liggja handan hennar. Loks er í þriðja hlutanum, Næturhimininum, vegvísir um himingeiminn fyrir áhugastjörnufræðinga.
Bókina prýða þúsundir ljósmynda, skýringarmynda og stjörnukorta.
Aðalritstjóri bókarinnar er Martin Rees en hann er prófessor í heimsfærði og stjarneðlisfræði og rektor við Trinity Collage í Cambridge-háskóla á Englandi. Hann gengdi um skeið embætti konunglegs stjörnufræðings og er nafnkunnur fyrir rannsóknir sínar á svartholum og myndun vetrarbrauta.
Þýðandi bókarinnar er Karl Emil Gunnarsson.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun