Höfundur: Lone Theils
Danski blaðamaðurinn Nóra Sand finnur ljósmynd af tveimur stúlkum í gamalli ferðatösku. Fljótlega kemur í ljós að myndin tengist hvarfi tveggja danskra stúlkna á leið til Englands árið 1985.
Leitin að sannleikanum um örlög stúlknanna reynist ískyggilegri en nokkurn gat órað fyrir.
Stúlkurnar á Englandsferjunni sló í gegn þegar bókin kom út í Danmörku árið 2015 og hefur nú verið þýdd á yfir 15 tungumál.