Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Ölvir Gíslason, Steinþór Steingrímsson

Glænýjar spurningar eru loksins komnar úr Spurt að leikslokum verksmiðjunni eftir langa bið sem hefur verið mörgum þungbær. Allir þekkja Spurt að leikslokum, spilin sem gerðu allt brjálað fyrir fáum árum síðan en eru nú löngu uppseld. Þau eru til á þúsundum heimila og eru mikið notuð, ekki bara sem glasamottur og hurðastopparar. Og það köllum við meðmæli!

Spurt að leikslokum: Sprellfjörugi spurningaleikurinn er spurningaspil í bókaformi fyrir 1 til 10 keppendur á öllum aldri. Spilinu er skipt í sjö lotur, sem hver um sig er sex umferðir. Spurningarnar eru úr öllum áttum. Þær skiptast í spurningar fyrir börn annars vegar og fullorðna hins vegar svo fjölskyldan geti spilað saman á jafningjagrundvelli.

Skemmtið ykkur vel!

2.990 kr.
Afhending