Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Ásta Sigurðardóttir

Ásta Sigurðardóttir (1930–1971) rótaði heldur betur upp í bæjartjörn Reykjavíkur þegar fyrsta smásagan hennar, Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns, birtist í tímaritinu Líf og list 1951. Á næstu árum vakti hver sagan af annarri mikla athygli – Draumurinn, Í hvaða vagni, Gatan í rigningu – og safnið sem kom út 1961 varð sígilt um leið. Smásögur Ástu og dúkristur eru enn ferskar, ögrandi og þrungnar heitum tilfinningum. Þær eru íslensk nútímaklassík.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun