Höfundur: Guðrún Helgadóttir
Sænginni yfir minni er þriðja bókin um þær systur Heiðu, Lóu-Lóu og Öbbu hina sem sagt er frá í bókunum Sitji Guðs englar og Saman í hring. Hér segir hin glaðværa Abba hin söguna sem gerist eitt sumar í Firðinum skömmu eftir seinna stríð. Undir glettnu og grípandi yfirborðinu er þroskandi saga sem heillar unga jafnt sem eldri lesendur. Bókin er ríkulega skreytt myndum eftir Sigrúnu Eldjárn sem eru fullar af gleði og lífi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 2 klukkustundir og 27 mínútur að lengd. Silja Aðalsteinsdóttir les.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun