Heimilisfang
Velja afhendingarmáta

Höfundur Silje Ulstein

[removed]

Lítil kúla færðist niður eftir löngum slöngumaganum, rétt sýnileg bunga á glansandi húðinni. Ég rétti höndina fram og strauk varlega yfir hana með fingurgómunum. Velti fyrir mér hvernig tilfinning það væri að vera þarna inni. Það hlyti að vera hlýtt, hugsanlega blautt og þröngt líka, eins og í móðurlífi.

Á heitum ágústdegi hverfur ellefu ára gömul stelpa, Iben, sporlaust í verslunarmiðstöð eftir rifrildi við mömmu sína. Fyrstu viðbrögð móðurinnar þykja grunsamleg, hún sest upp í bílinn sinn og stingur af. Og þótt hún snúi aftur þarf hún að láta sig hverfa að nýju – til annars lífs og annars tíma.

Minningar skriðdýrs er myrkur og grípandi sálfræðitryllir um einmanaleika, sorg og skömm; áhrifamikil skáldsaga um að vita hver maður er, finna sér stað í lífinu og – kannski fyrst og fremst – að læra að elska.

Silje Ulstein er fædd árið 1985. Minningar skriðdýrs vakti gríðarmikla athygli þegar hún kom út í heimalandi hennar, Noregi, og útgáfurétturinn hefur síðan verið seldur til fjölda landa.

Dagur Gunnarsson þýddi.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun