Höfundur: Sigríður Ólafsdóttir
Sérhljóðabækurnar eru léttlestrarbækur í bókaflokknum Lesum lipurt eftir Sigríði Ólafsdóttur sérkennara. Bækurnar eru átta talsins og mælt er með því að þær séu lesnar í númeraröð.
Markmiðið með bókunum er að þjálfa lestur á orðum sem innihalda ákveðin sérhljóð eða tvíhljóð og er lestextinn spunninn utan um þau. Textinn er einfaldur og mikið um endurtekningar, þannig að nemandinn finnur fyrir getu sinni og sjálfstraust hans eykst.
Bækurnar eru seldar átta saman í pakka.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun