Höfundar: Bergrún Íris Sævarsdóttir, Stefán Máni
Lovísa Perlufesti Blómasdóttir er ekki bara æruverðug og ættgöfug hefðarprinsessa. Hún er líka daprasta litla stúlka í heiminum.
Alein býr hún í hæsta turninum á stórum kastala í dimmu landi langt í burtu. Eða hvað? Getur verið að Lovísa Perlufesti prinsessa sé kannski allt önnur manneskja á allt öðrum stað?
Stefán Máni rithöfundur sýnir hér á sér nýja hlið í bráðskemmtilegri barnasögu sem prýdd er einkar fallegum myndum Bergúnar Írisar Sævarsdóttir.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun