Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Felix Bergsson, Halla S.Þorgeirsd. myndskreytt

Jólin nálgast. Steinn gamli er að stilla jólasveinabrúðunum upp í litlu versluninni sinni þegar krummi flýgur inn um gluggann og vill heyra eftirlætissöguna sína – söguna um litla drenginn frá Læk, Stekkjarstaur, eldgosið og Grýlu; ævintýrið um strákinn sem átti bara einn skó. Steinn hefur margoft sagt krumma þessa sögu en vill gjarna rifja hana upp einu sinni enn. Viljið þið heyra hana líka?

Felix Bergsson er þekktur fyrir vandað og skemmtilegt barnaefni. Ævintýrið um Augastein skrifaði hann upphaflega sem leikrit sem sýnt hefur verið fyrir hver jól undanfarin sextán ár. Halla Sólveig Þorgeirsdóttir hefur myndskreytt fjölda barnabóka og hlotið bæði Dimmalimm – Íslensku myndskreytiverðlaunin og Norrænu barnabókaverðlaunin.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Höfundur les.

2.530 kr.
Afhending