Eyvindur Þóruson og amma hans búa ásamt tveimur köttum í gömlum bústað við Elliðavatn. Þar hefur lífið gengið sinn vanagang þau þrettán ár sem Eyvindur hefur lifað en nú liggur eitthvað í loftinu. Sami magnaði draumurinn sækir aftur og aftur að Eyvindi – þar æða trylltir hestar um í þoku, jörðin opnast, hverir gjósa og kofar brotna í spón.
Örlögin leiða Eyvind upp á öræfi þar sem hann fetar magnaða draugaslóð á vettvangi Fjalla-Eyvindar, Reynistaðarbræðra og síðast en ekki síst nýliðinna atburða sem hann sogast inn í án þess að fá nokkru um það ráðið.
Kristín Helga Gunnarsdóttir hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp vinsælustu rithöfunda landsins. Draugaslóð er spennandi bók þar sem nútíð og fortíð fléttast saman, útilegumenn og draugar leika lausum hala og óbyggðirnar breiða úr sér.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun