Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Njáll Gunnlaugsson

Hin goðsagnakenndu Harley-Davidson-mótorhjól þarf ekki að kynna fyrir neinum, enda muna flestir eftir vígreifum lögreglumönnum á slíkum gæðingum. Færri vita hins vegar að þetta voru vinsælustu mótorhjólin á fyrri hluta síðustu aldar þegar sannkallaðar hetjur riðu um héruð landsins á vélfákum. Hér er saga Harley-Davidson á Íslandi rifjuð upp í máli og myndum, allt frá því að fyrstu mótorhjólin birtust árið 1917. Eftir gullöld einstaklingshjólanna á þriðja og fjórða áratugnum tók lögreglan þau í þjónustu sína og þá upphófst einn merkilegasti kaflinn í sögu þeirra. Í bókinni er einnig fjallað um nokkrar aðrar gerðir amerískra mótorhjóla sem bárust hingað til lands á liðinni öld.

Höfundurinn, Njáll Gunnlaugsson, er landsþekktur áhugamaður um mótorhjól og hefur lengi rannsakað sögu þeirra. Hann skrifar reglulega um bíla og mótorhjól í dagblöð og á samfélagsmiðla, samhliða því að kenna Íslendingum að aka þessum undratækjum.

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun