Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Sara Ejersbo

Emma er byrjuð í nýjum bekk. Það er bæði ógnvænlegt og spennandi – og fyrst og fremst tækifæri til að koma sér út úr hlutverki stilltu stelpunnar. Emma uppgötvar fljótt að samkeppnin um athyglina í bekknum er mikil. Þess vegna segir hún eina litla hvíta lygi. Lygin vex og allt í einu er allur skólinn að tala um Emmu. Hún verður að gera eitthvað áður en hún verður afhjúpuð og hún þarf hjálp. En er hægt að byggja nýja vináttu á lygi? Emma er hætt að vera stillta stelpan. Þorir hún að segja satt þegar á reynir? Allar stelpurnar vilja vera vinkonur Jósefínu. Þýðir það líka að þær kunni vel við hana? Amanda hefur alla sína skólagöngu séð um sig sjálf. Er kannski kominn tími til að hún eignist vinkonu – ef hún getur? Vinkonur 2: Leyndarmál Emmu er önnur bók í seríunni Vinkonur sem fjallar um vináttu, leyndarmál, ást og lygar – og um að uppgötva að þótt maður sé nógu gamall til að gera breytingar á lífi sínu fara hlutirnir ekki alltaf eins og til stóð …