Höfundur: Draumey Aradóttir
VARURÐ er sjötta bók höfundar. Fimm ljóðanna hafa þegar hlotið verðlaun og viðurkenningar. Í bókinni býðst lesendum að reima á sig skóna og halda með höfundi í ljóðför um oddhvassar lendur óttans; allt frá upptökum hans að óumflýjanlegum átökunum við hann. Nestuð áræði, einlægni og varurð er áfangastaðurinn langþráð frelsið, friðurinn og fögnuðurinn sem bíður þeirra sem fletta af sér öllu því sem þeir töldu sig vera og kasta sér kviknaktir út í ógnvekjandi eldskírnina.