Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundar: Ingileif Friðriksdóttir, María Rut Kristinsdóttir

Úlfur og Ylfa eru bestu vinir. Þau eru komin í sumarfrí og eru á leið í ferðalag með mömmum hans Úlfs. Þau ætla að keyra alla leið á Vestfirði og að sjálfsögðu slæst hundurinn Bósi Ljóshár með í för. Vinanna bíða mörg ævintýri á áfangastað, bæði náttúruundur og nýir vinir og þau taka þátt í spennandi keppni. Höfundar bókarinnar eru Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir sem halda úti fræðsluvettvanginum Hinseginleikinn. Bókin er önnur í röðinni um vinina Úlf og Ylfu. Bókaflokknum er ætlað að fagna fjölbreytileikanum með því að sýna hann í allri sinni dýrð í skemmtilegum sögum fyrir hressa krakka. Fallegar myndir bókarinnar teiknaði Auður Ýr Elísabetardóttir.