Heimilisfang
Velja afhendingarmáta
Höfundur: Gísli Þór Ólafsson

Svartuggar er 7. ljóðabók Gísla Þórs Ólafssonar. Við vinnslu bókarinnar var lagt upp með fiskaheiti og ýmsar upplýsingar um líferni fiska, útlit þeirra og atferli í sjónum. Það speglast svo við baráttu mannfólksins við hina ýmsu andlegu kvilla sem þjóðfélagið býður upp á.

Í bland við alvarlegan undirtón er húmorinn aldrei langt undan, en það er eitt af aðalsmerkjum höfundar.

Gísli Þór Ólafsson er skjalavörður, skáld og tónlistarmaður sem hefur bæði gefið út ljóðabækur og geisladiska og m.a. lög við ljóð Geirlaugs Magnússonar. Hans fyrsta bók, Harmonikkublús kom út árið 2006.

Mynd á kápu: Ásgerður Arnar.
Útgefandi: gu/gí

Aðrar vörur frá þessari verslun

Aðrar vörur frá þessari verslun