Í þessari bók er nýstárlegum aðferðum beitt til að varpa ljósi á merkan kafla í íslenskri leiklistarsögu. Höfundur segir sögu allra helstu leikara tímabilsins, greinir frá sigrum þeirra og ósigrum jafnframt því sem hann gerir valdabaráttunni að tjaldabaki ítarleg skil.
Hann hefur kannað ógrynni heimilda við undirbúning verksins og dregur fram í dagsljósið margt sem legið hefur í þagnargildi allt til þessa dags. Ljós og lifandi frásögn hans endurspeglar fjölbreytilegan heim leikhússins, stundum nöturlegan, en oftast litríkan og heillandi, borinn uppi af hæfileikaríku fólki sem lagði sál sína og metnað í að skapa gott leikhús.
Það er síst ofsagt að bókin sé mikill hvalreki fyrir alla sem hafa áhuga á leiklist og íslenskri menningarsögu síðustu aldar.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun