Hefur þig alltaf dreymt um að góna á Frelsisstyttuna og taka selfí við píramídann í Gíza?
Þá er þetta alls ekki bókin fyrir þig því Steindi fer með þig á miklu skrýtnari slóðir.
Hann mætir á Barnastökkshátíðina á Spáni, verslar á lífshættulegum markaði í Taílandi og keppir í táglímu á Englandi, svo fátt eitt sé nefnt.
Leiðarvísir Steinda um heiminn er stútfullur af skemmtun.