Í þessari bók má sjá ljósmyndir eftir Björn Erlingsson, er sýna þann margbreytileika sem í íslenskri veðráttu birtist. Myndirnar eru teknar á öllum árstímum, við mismunandi birtu- og veðraskilyrði; í rigningu, snjó, hvassviðri og þoku. Nánast engin mynd er tekin í albjörtu veðri, en oftast hefur höfundurinn leitað fanga þegar ókyrrð hefur legið í loftinu.
Björn Erlingsson hefur tekið allar ljósmyndir í bókinni, ritað textann, séð um setningu, hönnun og umbrot, og að lokum bundið inn hvert og eitt eintak með handverki sínu. Hér birtist hin sanna Íslandsbók, þar sem sérstæðar ljósmyndir og huglægt innsæi í texta fara saman. Bókin er gefin út á íslensku og þýsku í þýðingu Angelu Schamberger, og íslensku og ensku í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar.
Aðrar vörur frá þessari verslun
Aðrar vörur frá þessari verslun